Passíusálmarnir

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2015 652 5.990 kr.
spinner

Passíusálmarnir

5.990 kr.

Passíusálmar - Crymogea
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2015 652 5.990 kr.
spinner

Um bókina

Passíusálmarnir eru eitt af lykilbókmenntaverkum íslenskrar menningarsögu. Þeir eru fluttir ár hvert bæði í útvarpi og kirkjum, og sungnir við ýmis tækifæri. Sálmarnir voru fyrst gefnir út á Hólum árið 1666 og eru eitt örfárra bókmenntaverka íslenskra höfunda sem samfellt hafa verið til á bókamarkaði frá fyrstu útgáfu.

Passíusálmaútgáfa Marðar Árnasonar í hönnun Birnu Geirfinnsdóttur brýtur blað í langri útgáfusögu sálmanna, þar sem ekki er einungis um að ræða hefðbundna útgáfu á sálmunum, því auk sálmanna eru birtar ítarlegar skýringar fræðimannsins.

Sérhvert erindi er með orð- og efnisskýringum en auk þeirra er mælskufræðileg bygging sálmanna skýrð með því að tilgreina hvar í byggingu hvers sálms erindin standa, hvort þau eru texta- eða útleggingarvers, bænir eða ávörp. Framan við hvern sálm er birtur samtímatexti prestahandbókarinnar sem Hallgrímur og aðrir starfsbræður hans í prestastétt á 17. öld studdust við, en þar er að finna þá samantekt úr guðspjöllum Nýja testamentisins sem Hallgrímur fylgir við efnisskipan Passíusálmanna. Aftan við hvern sálm er inntak hans dregið saman í efnisskýringu og gerð grein fyrir bragarhætti. Milli sálmanna er svo skotið inn frekari útlistunum á Passíusálmum, viðtökum þeirra og álitamálum við skýringu þeirra og skilning á guðfræði þeirra.

Í stað heildstæðs formála eða eftirmála er reynt með þeim hætti að tengja umfjöllunarefni hvers sálms nánar við breiðari útlistun á verkinu í heild sinni, samfélaginu sem það spratt úr og rúmlega þriggja alda túlkunarsögu þess.

Tengdar bækur

kr.
4.990 kr.
7.290 kr.
2.090 kr.
3.190 kr.
vending
3.190 kr.
990 kr.1.990 kr.
2.990 kr.

INNskráning

Nýskráning