TMM 4. hefti 2016
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2016 | 143 | 2.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2016 | 143 | 2.290 kr. |
Um bókina
Út er komið TMM, fjórða og síðasta hefti ársins. Meðal efnis í heftinu er grein eftir Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur um kvennabaráttuna hér á landi og gosvirkni hennar og grein eftir Anton Helga Jónsson um Þorstein frá Hamri.
Nýjar sögur birtast eftir Rúnar Helga Vignisson og Kristínu Ómarsdóttur en ljóð í heftinu eiga Guðrún Hannesdóttir, Vésteinn Lúðvíksson, Fríða Ísberg og Heimir Pálsson. Ástráður Eysteinsson skrifar um Kafka og Kristján Jóhann Jónsson um bókmenntakennslu í skólum. Sigríður Albertsdóttir birtir ýtarlegt viðtal við Sigurð Pálsson skáld og umsagnir eru um Syndarann eftir Ólaf Gunnarsson og Hundadaga eftir Einar Má Guðmundsson.
Hugvekja Einars Más Jónssonar er á sínum stað og einnig viðtal Kristínar Ómarsdóttur, sem að þessu sinni talar við Oddnýju Eir Ævarsdóttur.