Jón Kaldal – svart og hvítt
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 186 | 12.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 186 | 12.990 kr. |
Um bókina
Svart og hvítt. Þannig nefndi Jón Kaldal einu einkasýninguna sem hann hélt á sínum ferli og sett var upp í tilefni af sjötugsafmæli hans árið 1966. Þar valdi hann þær myndir sem honum þóttu standa uppúr á starfsævi sinni. Sýningarstækkanir hans frá árinu 1966 eru enn varðveittar og eru hér gefnar út í einni bók.
Þar má líta margar kunnustu ljósmyndir íslenskar menningarsögu, portrettmyndir þjóðkunnra karla og kvenna, myndir sem fyrir löngu eru orðnar táknmyndir þeirra sem sátu fyrir í ljósmyndastofu Kaldals við Laugaveg. Portrett Kaldals af Steini Steinarr, Ástu Sigurðardóttur, Halldóri Laxness og Finni Jónssyni geyma þá mynd sem Íslendingar gera sér af þessu fólki. List Kaldals fólst í móta jafnt í myndatöku sem eftirvinnslu sýn á persónuleika skapandi fólks og svipsterkra einstaklinga og miðla þannig til áhorfandans ímynd þjóðarinnar af sjálfri sér.
Nú loksins eru þessi meistaraverk íslenskrar menningarsögu gefin út í búningi sem hæfir þeim, ljósmynduð að nýju og prentuð í stærð og umbúnaði við hæfi.
Óskar Guðmundsson ritaði æviágrip þeirra sem á myndunum eru og hjálpar þannig nútímalesendum að átta sig á því hverjir voru hvað um miðbik 20. aldar.
Hönnun: Anton Kaldal
Formáli: Jón Kaldal III