Brennu Njáls saga – hljóðbók
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 2006 | Mp3 | 3.390 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Geisladiskur | 2006 | Mp3 | 3.390 kr. |
Um bókina
Brennu-Njáls saga eða Njála eins og hún er oftast kölluð er frægust Íslendinga sagna og margir telja hana bera af þeim öllum. Sagan greinir frá Njáli Þorgeirssyni bónda og höfðingja á Bergþórshvoli og sonum hans, en þeirra fræknastur var Skarphéðinn. Einnig fjallar hún um Hallgerði langbrók og Gunnar á Hlíðarenda.
Fleiri nafntogaðar persónur koma við sögu og eru lýsingar þeirra einstaklega lifandi og snjallar. Sagnfræðilegt gildi sögunnar má að sönnu draga í efa, en víst er að helstu persónur hennar voru uppi fyrir um 1000 árum og settu svip sinn á samtímann með eftirminnilegum hætti.
Höfundur Njálu er óþekktur en margar getgátur hafa verið uppi um hver hafi skrifað söguna. Elstu handrit hennar eru frá því um 1300.
Aðgengileg og áheyrileg Njáls saga við allra hæfi.
ATH. Hljóðbókin er aðeins til á geisladiski (CD eða Mp3) sem er afhentur í pósti eða sóttur í Bókabúð Forlagsins. Hér má finna hljóðbækur okkar sem eru aðgengilegar rafrænt í streymi.
Hallmar Sigurðsson les.