Íslensk barnaorðabók – verkefni
Verkefnin sem fylgja Íslenskri barnaorðabók þjálfa nemendur fyrst og fremst í að leita í orðabókinni og ætluð til þess að þau fái þjálfun í að nýta sér málfræðiupplýsingarnar sem þau finna þegar flett er upp. Verkefnin eru mjög misjöfn að þyngd og hér að neðan eru leiðbeiningar um hver þeirra henta hvaða bekkjum.
Kennarar eru hvattir til að senda athugasemdir um þessi verkefni á netfangið laufey@forlagid.is, og sömuleiðis láta vita ef þá vantar fleiri verkefni eða verkefni sem taka á öðrum efnisþáttum.
1. verkefni
1b: sérnöfn og samnöfn
1c: andheiti
Fyrir 2.–3. bekk:
Að fletta upp og raða í stafrófsröð eftir fyrsta staf í orði. Um sérnöfn og samnöfn. Um andheiti.
Fyrir 4.–6. bekk:
Að fletta upp og raða í stafrófsröð – tiltölulega einfaldar æfingar, stafrófsröð bæði eftir fyrsta staf í orði og fjórða staf í orðum sem byrja á str-
Fyrir 4.–6. bekk:
Að fletta upp, skýringar og máldæmi, málfræðiskammstafanir
Fyrir 4.–6. bekk:
Að fletta upp, málfræðiskammstafanir, orð sem eru bara til í fleirtölu, merking orða, orð sem hafa fleiri en eina merkingu, stafrófsröð
Fyrir 4.–6. bekk:
Að fletta upp, málfræðiskammstafanir, samhljóma orð, merkingarlegur munur á orðflokkum
Fyrir 4.–6. bekk:
Beyging nafnorða, málfræðiskammstafanir, kenniföll, orð sem eru bara notuð í eintölu eða fleirtölu, fallbeyging
Fyrir 5.–6. bekk:
Um lýsingaorð, beygjanleg og óbeygjanleg, stigbreyting og fallbeyging
Fyrir 5.–6. bekk
Um sagnorð, sterk og veik beyging, kennimyndir veikra og sterkra sagna