KK

Portett af þjóðargerseminni KK

Kristján Kristjánsson, KK, er þjóðargersemi og hefur verið frá því hann stökk inn í íslenskt tónlistarlíf með sinni fyrstu plötu fyrir hálfum þriðja áratug. Á þeim tíma hefur hann gefið út fjölmargar sólóplötur og einnig plötur með Magnúsi Eiríkssyni og öðrum, auk þess sem hann hefur leikið á óteljandi tónleikum og komið fram í leikritum eins og Þrúgum reiðinnar.

Í heimildarmyndinni Á Æðruleysinu fylgjumst við með KK og félögum á tónleikum og bregðum okkur í róður með honum á trillunni Æðruleysinu þar sem hann segir okkur frá sjálfum sér og deildir með okkur sýn sinni á lífið og tilveruna.

Einnig fylgir geisladiskur með átján perlum úr lagasafni KK, þar á meðal tvö lög sem ekki hafa verið gefin út áður og í ríkulega myndskreyttum bæklingi deilir KK með okkur sögunum á bakvið hvert lag.

INNskráning

Nýskráning