Þá hló Skúli

Þá hló Skúli

Skúli Alexandersson (1926–2015) fæddist í fábrotnu samfélagi norður á Ströndum sem varð miðlægt pláss með síld og sældargróða á fjórða áratug síðustu aldar. Hann flutti ungur á Hellissand, varð fljótlega oddviti hreppsins og reyndi bæði þá og síðar sem alþingismaður að betrumbæta og bylta þjóðfélagi sem var að taka á sig nýja mynd.

Í bókinni Þá hló Skúli segir frá stjórnmálaferli Skúla og atvinnuþátttöku, uppvexti og lífsævintýrum ýmsum. Skúli gerir upp við kvótakerfið en hann var ranglega sakaður um misferli með kvóta og stóð í margra ára málaferlum.

Óskar Guðmundsson er lesendum að góðu kunnur fyrir fjölmörg sagnfræðileg rit og ævisögur. Bók hans, Snorri – Ævisaga Snorra Sturlusonar 1179–1241, vakti mikla athygli og hlaut feiknalof gagnrýnenda.

Að þessu tilefni verður haldið útgáfuboð í Eymundsson Austurstræti, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17. Léttar veitingar í boði og allir velkomnir.

INNskráning

Nýskráning