Frelsi

Ljóðaunnendur athugið!

Í dag kemur út glæný ljóðabók eftir eitt besta ljóðskáld okkar, Lindu Vilhjálmsdóttur. Bókin ber nafnið Frelsi og er hennar sjötta ljóðabók.

Fyrstu ljóð Lindu birtust í blöðum og tímaritum en fyrsta ljóðabók hennar, Bláþráður, kom út 1990. Langt er síðan Linda sendi síðast frá sér ljóðabók – það var Frostfiðrildin sem kom út 2005. Auk ljóða hefur hún skrifað sjálfsævisögulega skáldsögu sem vakti mikla athygli, Lygasögu.

Linda er, eins og áður sagði, eitt besta ljóðskáld okkar og ný bók frá henni stórtíðindi. Frelsi geymir um fimm tugi beittra, pólitískra ljóða: meitlaðar og áhrifaríkar ljóðmyndir spegla samfélag og samtíma, og þvinga jafnvel lesandann til miskunnarlausrar sjálfsskoðunar. Áleitin bók sem hreyfir við hugsunum og tilfinningum.

INNskráning

Nýskráning