Skutlubók Villa

Náðu flugi með Villa!

Skutlubók Villa er komin út! 17 skemmtilegar skutlur og leikir sem sameina alla fjölskylduna.

Það er enginn vandi að smíða listflugvél, geimskip eða ofurhetjuflaug, það eina sem þarf er dálítil sköpunargleði og góðar leiðbeiningar. Í Skutlubókinni kennir Vísinda-Villi krökkum á öllum aldri að búa til alls kyns skutlur úr einfaldasta efniviði í heimi – einu pappírsblaði! Með ímyndunaraflið að vopni má svo halda endalaust áfram, betrumbæta skutlurnar, búa til nýjar og láta þær fljúga lengra og lengra.

Villi hefur getið sér gott orð fyrir vandað og fræðandi barnaefni. Vísindabók Villa og Vísindabók Villa 2 hlutu frábærar viðtökur hjá íslenskum börnum og fjölskyldum þeirra. Sú fyrri var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki barnabóka og valin besta íslenska barnabókin hjá bóksölum landsins.

Villi óskar öllum flugköppum góðrar ferðar inn í leyndardóma loftaflsfræðinnar.

Ekki nóg með það heldur fylgja 20 litrík skutlublöð bókinni svo hægt að byrja strax!

INNskráning

Nýskráning