Anders de la Motte

Bubble

[bubble] er framhald spennubókanna [geim] og [buzz] og jafnframt síðasta bindið í þessum kraftmikla og frumlega þríleik sem notið hefur ótrúlegra vinsælda um allan heim.

Henrik Pettersson, HP, reynir að losa sig úr járngreipum Leiksins sem hann flæktist inn í fyrir tilviljun – eða var það kannski alls ekki tilviljun? Rebecca systir hans er farin að vinna að öryggismálum hjá alþjóðlega fyrirtækinu PayTag en þegar hún kemst á snoðir um bankahólf sem hún er skráð fyrir leitar hún aðstoðar hjá hinum dularfulla Tage Sammer. Er hann gamall vinur föður þeirra – eða í rauninni stjórnandi Leiksins, eins og HP heldur fram?

Hverjir eru vinir og hverjir óvinir?
Hver er að spila með hvern?

Vert er að minna á að [geim] og [buzz] eru nú fáanlegar saman í einum pakka á frábæru verði. Líttu við í næstu bókaverslun eða í verslun okkar á Fiskislóð 39.

INNskráning

Nýskráning