MMM Matreiðslubók Mörtu Maríu tilnefnd til Gourmand verðlaunanna

MMM Matreiðslubók Mörtu Maríu, fékk í dag tilnefningu fyrir hönd Íslands til GOURMAND WORLD COOKBOOK AWARDS 2014.

Það opnar möguleika Mörtu Maríu á að vinna  “GOURMAND BEST IN THE WORLD” titilinn sem besta skandinavíska matreiðslubókin.

Sigurvegarinn verður tilkynntur 9. júní í Yantai, í kína.

Við samgleðjumst Mörtu Maríu og óskum henni til hamingju, enda er bókin hennar afskaplega falleg og girnileg.

Í bókinni má finna á annað hundrað heilsusamlegar sælkerauppskriftir (og örfáar sem eru ekki alveg eins hollar en ekki síður æðislegar) að morgunverðarréttum, drykkjum, nesti í skólann og vinnuna, kvöldmat handa fjölskyldunni og veitingum í vinaboðin.

Marta María gefur jafnframt ráð um hollustu, næringu og heilbrigt lífsmynstur og deilir náttúrulegum fegrunar- og slökunarúrræðum sínum. Marta María hefur árum saman fjalla um mat, tísku og mannlíf í ýmsum fjölmiðlum. Hún stýrir nú Smartlandi Mörtu Maríu á mbl.is.

Ljósmyndir í bókinni eru eftir Guðný Hilmarsdóttur.

INNskráning

Nýskráning