Fjögur skáld

Upphaf nútímaljóðlistar á íslensku

Í dag kemur út yfirgripsmikið verk Þorsteins Þorsteinssonar, Fjögur skáld, sem fjallar um lykilskáld módernismans og upphaf nútímaljóðlistar á Íslandi. Sannkölluð perla fyrir alla ljóðunnendur!

Hér fjallar Þorsteinn um ljóð fjögurra íslenskra skálda á fyrri hluta síðustu aldar. Skáldin eru vel kunn: Jóhann Sigurjónsson, Jóhann Jónsson, Halldór Kiljan Laxness og Steinn Steinarr, og í brennidepli eru þau ljóð þeirra sem mestum tíðindum sættu á sínum tíma vegna nýjunga sem áður höfðu lítt eða ekki þekkst í íslenskri ljóðlist.

Auk almennra ljóðskýringa eru raktir þræðir frá þróun sem hófst á seinni hluta 19. aldar og hefur verið kennd við módernisma, og hugað að ætterni ljóða. Niðurstöður eru um margt frábrugðnar fyrri skýringum á íslenskri ljóðlistarsögu þessa tíma.

Þorsteinn Þorsteinsson hefur getið sér afar gott orð fyrir bókmenntarannsóknir sínar, ekki síst umfjöllun um íslenska ljóðlist á 20. öld. Fyrir bók sína Ljóðhús, um skáldskap Sigfúsar Daðasonar, hlaut hann Íslensku bókmenntaverðlaunin 2007.

Umsagnir um bók Þorsteins, Ljóðhús – þættir um skáldskap Sigfúsar Daðasonar:

*****
„Hugmyndir fara fljúgandi um, þyrlast upp og finna sér skjól … Höfundurinn skrifar skýran og einfaldan texta, er nálægur og innilegur í tóni …“
Páll Baldvin Baldvinsson / Fréttablaðið

„Þorsteinn skrifar afar læsilegan texta þannig að erfið viðfangsefni verða skýr í meðförum hans. Hann er þrautreyndur kennari og kann að útskýra og leiða mann áfram svo til fyrirmyndar er.“
Silja Aðalsteinsdóttir / tmm.is

INNskráning

Nýskráning