Bæði nýjar skáldsögur sem og eldri hlaðast inn á vefinn þessa dagana í formi rafbókar. Hin vinsæla Fimmtíu gráir skuggar er komin út í rafbók og síðasta bókin í Hungurleikja-þríleiknum, Hermiskaði. Herbergi eftir Emmu Donoghue sem kom út í kilju fyrir eingöngu fáeinum vikum er nú einnig fáanleg sem rafbók, sem og Reglur hússins eftir Jodi Picoult.
Sem sagt nóg af lesefni fyrir rafrænu lesendurna!