Hreinsun, kvikmynd byggð á samnefndri skáldsögu Sofi Oksanen, verður framlag Finna sem „Besta erlenda myndin“ til Óskarsverðlaunanna árið 2013.
Íslendingar munu ekki missa af þessari áhugaverðu kvikmynd, en hún verður sýnd frá 26. október nk. í Bíó Paradís.