Laugardaginn 6. október n.k. mun Grindavíkurbær halda samkomu til heiðurs Guðbergi Bergssyni rithöfundi og heiðursborgara Grindavíkur sem fagnar áttræðis afmæli sínu um þessar mundir. Undirrituð verður viljayfirlýsing á milli Grindavíkurbæjar og Guðbergs um opnun Guðbergsstofu, sem verður sýning um líf og feril höfundarins.
Guðbergsstofa verður staðsett í Kvikunni, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur, og er fyrirhuguð opnun í mars 2013 í tengslum við menningarviku Grindvíkinga. Jafnframt verður verkum Guðbergs gerð góð skil í nýju bókasafni Grindavíkurbæjar sem opnar í ársbyrjun 2014.
Á laugardaginn mun Guðbergur lesa upp óútgefna stuttsögu og jafnframt mun Hinrik Bergsson, bróðir Guðbergs, segja frá uppvaxtarárum þeirra bræðra í Grindavík.
Dagskráin hefst klukkan 14:00 í Kvikunni, auðlinda- og menningarhúsi Grindavíkur að Hafnargötu 12a í Grindavík. Allir hjartanlega velkomnir.