Í tilefni útgáfu bókarinnar Jesúsa: óskammfeilin, þverúðug og skuldlaus á íslensku verður höfundur hennar, Elena Poniatowska, á Íslandi 9.–13. september.
Elena Poniatowska (f. 1932) er einn þekktasti og merkasti rithöfundur Mexíkó og skrifar bæði skáldverk, blaðagreinar og fræðilegar bækur um samfélagsmál. Hún beinir ekki síst sjónum að mannréttindamálum og félagslegri stöðu kvenna og fátækra.
Mánudaginn 10. september kl. 20 verður haldið höfundarkvöld til heiðurs Poniatowsku í Iðnó. Þar verður bókin rædd, lesið upp úr henni og Poniatowska ávarpar salinn. Forlagið býður upp á fordrykk áður en dagskráin hefst. Veitingasala hússins verður opin meðan á dagskrá stendur. Bókin verður til sölu á tilboðsverði og Poniatowska áritar verkið.
Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.