Prjónaklúbburinn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2010 | 379 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2010 | 379 | 990 kr. |
Um bókina
Prjónabúð Georgiu Walker á Manhattan er ekki bara miðdepill lífs hennar og tólf ára dótturinnar Dakotu, hún er líka athvarf kvenna sem hittast þar til að prjóna, tala, hlæja og gráta saman. Klár hönnuður á framabraut, öldruð ekkja, ung femínísk menntakona, kjaftfor atvinnulaus ritstjóri, verðandi einstæð móðir á fimmtugsaldri …
Þær eiga ekkert sameiginlegt nema prjónaskapinn – en þær eiga hver aðra að þegar á reynir. Þegar andlit úr fortíð Georgiu birtast trufla þau tilveru hennar svo um munar. Prjónaklúbburinn er heillandi bók um vináttu, ást, fjölskyldu og prjónaskap.
Kate Jacobs er kanadískur rithöfundur og ritstjóri, búsett í Kaliforníu. Prjónaklúbburinn, fyrsta skáldsaga hennar, sló rækilega í gegn og komst í efsta sæti metsölulista New York Times.
4 umsagnir um Prjónaklúbburinn
Elín Pálsdóttir –
„Mikil örlagasaga þar sem gleði og sorgir skiptast á … það þarf ekki að kunna að prjóna til að hafa gaman að henni.“
Guðríður Haraldsdóttir / Vikan
Elín Pálsdóttir –
„Ef þig langar að verja nokkrum kvöldum í félagsskap áhugaverðra kvenna skaltu hreiðra um þig í sófanum með Prjónaklúbbinn.“
USA Today
Elín Pálsdóttir –
„Æðisleg saga.“
Marie Claire
Elín Pálsdóttir –
„Frábær bók – lestu hana núna.“
Glamour