Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Almúgamenn
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 1998 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 1998 | 990 kr. |
Um bókina
Almúgamenn er eftir Arnmund Backman. Arnmundur hafði nýlega lokið við söguna er hann lést í september 1998. Áður voru komnar út tvær skáldsögur eftir Arnmund, Hermann og Böndin bresta en auk þess skrifaði hann leikrit.
Sögusvið er íslenskt sjávarþorp í upphafi sjötta áratugarins. Það eru mikil átök í íslensku þjóðlífi milli landsbyggðarinnar og höfuðborgarinnar, milli kapítalista og sósíalista og menn eru jafnvel á öndverðum meiði í trúmálum. Sumir telja Jósef Stalín guði almáttugum æðri.
Aðalsöguhetja bókarinnar er ungur drengur sem elst upp í þorpssamfélaginu og mótast af þeim viðhorfum sem ríkja hjá hans nánustu. Afi Gvendur og amma Gunna eru stoð hans og stytta.