Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Einar Benediktsson, II. bindi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1999 | - | 2.330 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 1999 | - | 2.330 kr. |
Um bókina
Árið er 1907. Í upphafi annars bindis ævisögu Einars Benediktssonar stendur hann, skáldjöfurinn og ævintýramaðurinn, rétt einu sinni á vegamótum og nú á leið út í hinn stóra heim. Hann er margslunginn persónuleiki og nú er það athafnamaðurinn sem ræður för. Hann ætlar að láta hugsjónir sínar rætast og verða hinu fátæka föðurlandi sínu að gagni í útlöndum, útvega peninga til að gera Ísland að nútímaríki.
Hér fylgjumst við með ferðum Einar og framkvæmdum næsta áratuginn á því tímabili í lífi hans sem helst hefur verið hjúpað dulúð. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur hefur unnið mikið frumkvöðlastarf og víða aflað fanga við að skapa sem heilsteyptasta og réttasta mynd af einum dáðasta en jafnframt umdeildasta syni þjóðarinnar.