Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Tröllafell
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2005 | 279 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2005 | 279 | 990 kr. |
Um bókina
Peer Úlfsson stendur við líkbál föður síns og telur sig eiga engan að þegar að honum arkar skuggalegur, risavaxinn maður sem kveðst vera Baldur frændi hans. Baldur og bróðir hans, Grímur, búa í hrörlegri myllu við hið drungalega og leyndardómsfulla Tröllafell og þangað flyst Peer ásamt trygga hundinum sínum, Loka.
Baldur og Grímur reynast þrjótar og þegar Peer uppgötvar að hinir gráðugu frændur hans og tröllin eru að brugga ráð saman dregst hann, ásamt hinni úrræðagóðu vinkonu sinni, Hildi, inn í æsilega atburðarás.
Tröllafell er fyrsta bók Katherine Langrish og var sagnabrunnur Norðurlanda henni innblástur að sögunni.