Næturstaður
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2002 | 176 | 2.065 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2002 | 176 | 2.065 kr. | ||
Rafbók | 2017 | 990 kr. |
Um bókina
Lesandinn slæst í för með Reyni sem hefur dvalið árum saman á meginlandinu en snýr nú aftur til heimabyggðarinnar á hjara veraldar til að vera viðstaddur jarðarför föður síns. Þar ólgar hafið við strönd, jökulsá byltist um sanda og draugar setjast að vegfarendum á heiðum.
Aðalpersónan hefur forðast þessa náttúru eins og hann hefur alla tíð forðast að takast á við fortíðina.
Við söguna af heimsókninni fléttast atvik úr æviferli manns saman við hugleiðingar um tímann og framvinduna í heiminum svo minnir á máttugt tónverk. Stórbrotnar náttúrulýsingar og sterkar svipmyndir af fólki fanga hugann og lesandinn sogast inn í straum frásagnar þar sem fortíð, nútíð og framtíð mætast í sömu andrá og miðla nýrri og ferskri skynjun.
Þetta er þriðja skáldsaga Sigurðar Pálssonar. Sagan ber þess vitni að frásagnartækni höfundar er í athyglisverðri þróun. Allt er tengt á listilegan hátt í þessari sögu, smáatriði og heild, ytri veruleiki og innri líðan, fortíð og nútíð.