Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2001 | 2.540 kr. |
Um bókina
Sigurður Pálsson hefur staðfastlega haldið áfram að þróa ljóðstíl sinn og viðfangsefni alveg frá sinni fyrstu bók, Ljóð vega salt, sem kom út 1975 og vakti mikla athygli.
Í nöfnum ljóðabóka hans kemur fram eindregið skipulag en í skáldskap Sigurðar hefur alltaf mátt greina skemmtilega spennu milli staðfestu og síbreytileika, reglu og óreiðu, sterkrar byggingar og flæðis. Eins og nafnið Ljóðtímaleit bendir til er leitin að ljóðtímanum þungamiðja bókarinnar.
Bókin er til vitnis um leikandi ljóðstíl og skipulega leit að þeim stundum sem öllu skipta í lífinu, hinum ljómandi stundum fegurðar og saknaðar. Þessi ljóð eiga skilið skapandi lestur.
Ljóðtímaleit var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2001.