Heimsins heimskasti pabbi
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2000 | 218 | 990 kr. | ||
Mjúk spjöld | 2005 | 218 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2000 | 218 | 990 kr. | ||
Mjúk spjöld | 2005 | 218 | 990 kr. |
Um bókina
Óvenjuleg og áleitin saga um ást og ástleysi, kynlíf, sjúkdóma og dauða. Snörp ádeila á nútímasamfélag eftir einn athyglisverðasta og kröftugasta höfund yngri kynslóðarinnar.
Hér segir af Marteini Mána, nútímamanni á niðurleið. Hann er þriggja barna faðir í Þingholtunum, hamingju- og öryggisfíkill, markaður af erfiðri bernsku. Foreldrar hans eru af hippakynslóðinni, en sjálfur tilheyrir hann firrtri kynslóð sem sífellt á að vera hress og geysast eftir framabrautinni í góðu formi. En hann er ekki þannig. Hvert á hann að beina reiði sinni yfir vondu hlutskipti? Höfundur fer á kostum í sögu sem er í senn fyndin, tregafull og beinskeytt.
Heimsins heimskasti pabbi (2000) er þriðja skáldsaga Mikaels Torfasonar. Hún hlaut góðar viðtökur og var meðal annars tilnefnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og Menningarverðlauna DV. Aðrar skáldsögur Mikaels eru Falskur fugl (1997), Saga af stúlku (1998) og Samúel (2002).
3 umsagnir um Heimsins heimskasti pabbi
Elín Pálsdóttir –
„Heimsins heimskasti pabbi er í senn svolítið fráhrindandi og afar áhrifamikil bók — og hún er firnavel skrifuð.“
Jón Yngvi Jóhannsson
Elín Pálsdóttir –
„Þetta er nefnilega falleg bók, þó einhverjum finnist það þversögn við allan skítinn sem þar er að finna. Mikki refur, til lukku með nýju bókina, þér tókst að koma út á mér tárunum oftar en einu sinni.“
Kristín Heiða Kristinsdóttir
Elín Pálsdóttir –
„Virðingarleysi hans við menn og málefni er sem frískur andblær og húmorinn í drengnum er hárbeittur.“
Jón Atli Jónasson