Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Stafrófið í íslenskum blómum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 64 | 5.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2016 | 64 | 5.190 kr. |
Um bókina
Meginmarkmið bókarinnar er að sýna ljósmyndir af íslenskum blómum í náttúrulegu umhverfi, þannig að ungir jafnt sem eldri lesendur geti þekkt blómin aftur úti í náttúrunni.
Á hverri opnu er ljósmynd af íslensku blómi sem á við þann bókstaf í stafrófinu sem stendur efst í horni síðunnar. Þar er einnig vísubrot eða þula þar sem viðkomandi blóm kemur við sögu, fróðleikur um hvar blómið er helst að finna og hvenær það blómstrar. Þegar grannt er skoðað má svo finna litla blómálfa í felum.
Aftast í bókinni er opna með yfirliti yfir heiti blómanna á íslensku, ensku og latínu, ásamt stuttum texta á ensku um hvert blóm og um íslenska stafrófið.
Sumargjöfin í ár!