Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Ljúfmeti úr lækningajurtum
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 116 | 4.405 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2012 | 116 | 4.405 kr. |
Um bókina
Anna Rósa grasalæknir og ástríðukokkurinn Albert hafa brennandi áhuga á eldamennsku og lækningajurtum. Í þessari bók hafa þau tekið höndum saman og útkoman er fjöldi girnilegra og gómsætra rétta þar sem krydd- og lækningajurtir eru í hávegum hafðar.
Hér er meðal annars næringarríkur morgunmatur, kjöt-, fisk- og grænmetisréttir og ljúffengar súpur að ógleymdum drykkjum, brauði og eftirréttum. Miðlað er fræðandi upplýsingum um lækningamátt jurtanna og stungið upp á öðru hráefni þegar ekki fást ferskar lækningajurtir á veturna.