Kul
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2024 | 372 | 7.690 kr. | ||
Rafbók | 2024 | - | 4.290 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2024 | 372 | 7.690 kr. | ||
Rafbók | 2024 | - | 4.290 kr. |
Um bókina
Una rambar á barmi kulnunar og er send vestur á firði í nýstofnað meðferðarúrræði, Kul. Þar dvelur lítill hópur fólks í þorpi við sjávarsíðuna í svartasta skammdeginu og glímir við það sem Hákon, forsprakki Kuls, segir mikilvægast: að horfast í augu við myrkrið innra með sér. Fyrir vestan fer fortíðin að sækja á Unu, minningar frá æskuárunum í litlu kjallaraíbúðinni með mömmu og Magga bróður.
Þegar hrikta fer í stoðum meðferðarinnar, og ekki síður sjálfsmyndar Unu, tekur allt það sem hefur frosið fast innra með henni að losna úr læðingi og veruleikinn fer á flot.
Kul er fyrsta skáldsaga Sunnu Dísar Másdóttur en áður hefur hún sent frá sér ljóðabókina Plómur sem var tilnefnd til Maístjörnunnar. Sunna er jafnframt ein Svikaskálda sem gefið hafa út fjórar ljóðabækur og skáldsöguna Olíu sem var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hún starfar ennfremur sem þýðandi, leiðbeinandi í ritlist og bókmenntagagnrýnandi.
2 umsagnir um Kul
Fanney Benjaminsdottir –
„ … svo hrífandi að það er erfitt að slíta sig frá lestrinum. “
Snædís Björnsdóttir / Morgunblaðið
Fanney Benjaminsdottir –
„Kul er spennandi og athyglisverð bók. Þessi fyrsta skáldsaga Sunnu Dísar Másdóttur er vel uppbyggð og áhugaverð … Þetta er ein af þessum bókum sem skilja lesandann eftir hungraðan í meira … Það er vart hægt að gefa bók betri meðmæli en það.”
Steingerður Steinarsdóttir / Lifðu núna