Nýlega skrifaði spennusagnahöfundurinn Jón Atli Jónasson undir útgáfusamning við þýska forlagið S. Fischer en þrjú stór forlög bitust um bækurnar þegar þær voru boðnar þýskum bókaforlögum fyrr á þessu ári. Bækurnar Brotin (2022) og Eitur (2023) munu verða áherslutitlar á glæpasagnalista þessa virta forlags. Ritstjóri Jóns Atla kallaði hann spennandi nýja rödd í norrænum bókmenntum og sagði að rannsóknarteymi bókanna, þau Dóra og Rado, væru einstakar sögupersónur sem lesendur glæpasagna í Þýskalandi myndu taka fagnandi. Reykjavík Literary Agency fer með erlenda sölu á verkum Jóns Atla og það verður spennandi að fylgjast með hvaða markaðir fylgja í kjölfarið en þýski bókamarkaðurinn hefur gjarnan virkað sem stökkpallur fyrir höfunda og bækur í þýðingum inn á aðra markaði.