Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 414 4.690 kr.
spinner
Rafbók 2023 - 3.990 kr.
spinner

Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg

3.990 kr.4.690 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2023 414 4.690 kr.
spinner
Rafbók 2023 - 3.990 kr.
spinner

Um bókina

„Stærsta kona á Íslandi“ var Guðrún Jónsdóttir í Stígamótum eitt sinn kölluð með vísun til hins mikla brautryðjandastarfs hennar í jafnréttisbaráttunni hér á landi. Eftir að Guðrún hafði starfað sem barnaverndarfulltrúi í braggahverfum og rutt brautina fyrir félagsráðgjafa á Íslandi var hún í fararbroddi þegar Kvennaframboðið kom fram í Reykjavík og aftur þegar Kvennalistinn var stofnaður. Hún sat í borgarstjórn þar sem hún var aldrei „ungfrú meðfærileg“ þó að hún og fleiri konur mættu þar einn daginn búnar eins og fegurðardrottningar í eftirminnilegum gjörningi. Hún var í lykilhlutverki  þegar þögnin var rofin um kynferðisbrot og Stígamótum var komið á laggirnar. Hún stóð alltaf með þolendum án þess að hvika og var meðal annars þess vegna dregin í yfirheyrslu hjá lögreglu.

Í þessari vönduðu ævisögu segir Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir sögu Guðrúnar frá því að hún er lítil stúlka í Mýrdalnum og fram á síðustu ár. Þetta er saga um réttindabaráttu og taugastríð, baráttusaga konu sem alls staðar þurfti að brjóta veggi og rjúfa þök, þjóðarsaga um miklar samfélagshræringar þar sem Guðrún var í hringiðunni – en líka falleg fjölskyldusaga um ást og tryggð, gleði og sorgir, vin­áttu og samheldni.

Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir hefur starfað við blaðamennsku frá árinu 2006 og hlotið ýmsar viðurkenningar og verðlaun fyrir skrif sín. Hún hefur á ferli sínum fjallað mikið um kvenfrelsismál og aðra réttindabaráttu. Ingibjörg er einn af stofnendum Heimildarinnar og ritstýrir henni. Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg er fyrsta bók hennar.

ATH. Spurt og svarað um rafbækur.

2 umsagnir um Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg

Skrifa umsögn

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *

Tengdar bækur

3.990 kr.4.690 kr.
3.690 kr.5.490 kr.
3.990 kr.4.690 kr.
3.690 kr.4.590 kr.
Guðni: Flói bernsku minnar
3.490 kr.3.890 kr.
1.990 kr.3.690 kr.
markús á flótta í 40 ár
5.190 kr.
Veistu ef vin þú átt
3.490 kr.3.790 kr.
samþykki
1.990 kr.3.490 kr.
11000 volt
6.090 kr.
Læknirinn í englaverksmiðjunni
3.490 kr.3.790 kr.

INNskráning

Nýskráning