Því dæmist rétt vera
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2023 | 271 | 4.490 kr. | ||
Innbundin | 2023 | 271 | 4.690 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2023 | 271 | 4.490 kr. | ||
Innbundin | 2023 | 271 | 4.690 kr. | ||
Rafbók | 2023 | - | 3.690 kr. |
Um bókina
Því dæmist rétt vera er safarík saga um glæp og refsingu í litlu sjávarþorpi fyrir tvö hundruð árum. En það skyldi þó ekki vera að sá hjari veraldar sé í raun réttri nafli alheimsins?
Í Tangavík ríða hættulegar hugmyndir húsum, hugmyndir um réttlæti og jöfnuð. Á laun ráðgera menn að losa hina ríku við auðinn sem íþyngir þeim en þegar látið er til skarar skríða er yfirvöldum ekki skemmt. Glæpir ógna gildum samfélagsins og mikið liggur við að bæla niður mótþróa og uppreisnarhug; finna hina seku, dæma hart og refsa grimmilega.
Hér eru litríkir þræðirnir úr seinustu sögu Einars, Skáldlegri afbrotafræði, spunnir áfram í ýmsar áttir, atburðarásin fer í kollhnís og kraftstökk yfir ár og aldir, skáldskapur og sagnfræði togast á um satt og logið, rétt og rangt – og allt fellur þetta saman í töfrum slunginn vef að hætti höfundarins.
Einar Már Guðmundsson hefur skrifað tugi vinsælla skáldverka og hlotið fyrir þau ýmis verðlaun. Bækur hans hafa verið gefnar út víða erlendis en sérstakrar hylli nýtur hann í Danmörku þar sem nýrra verka hans er jafnan beðið með óþreyju.
ATH. Spurt og svarað um rafbækur.
4 umsagnir um Því dæmist rétt vera
embla –
„Framúrskarandi skemmtilegar bækur eftir mikinn sagnameistara sem er með hjartað á réttum stað (það slær með lítilmagnanum).“
Árni Matthíasson
embla –
„Þetta er ákaflega vandað verk og hugmyndaríkt og spyr spurninga sem kallast sannarlega á við nútímann.“
Skafti Þ. Halldórsson
embla –
„Einar Már heldur áfram að spinna kostulegar sögur af þekktasta „bófaflokki“ á Íslandi á 19. öld. … Uppreisnarandi svífur yfir vötnum og auðnuleysingjarnir úr Tangavík sýna ófyrirleitinn ruddaskap en líka hugrekki og hjálpsemi.“
Guðmundur Jónsson, professor í sagnfræði við Háskóla Íslands
embla –
„Í stuttu máli sagt: Því dæmist rétt vera dæmist gott vera! Takk fyrir skemmtilegan og hugvekjandi aldarspegil um forfeður okkar Einar Már.“
Sigurður Á. Friðþjófsson