Maístjarnan, ljóðabókaverðlaun Rithöfundasambands Íslands og Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns verða veitt í sjöunda sinn í maí.
Tilnefningar til Maístjörnunnar vegna ljóðabóka útgefinna 2022 voru kynntar við athöfn í Gunnarshúsi í dag.
Tilnefndar bækur eru:
Skurn eftir Arndísi Lóu Magnúsdóttur. Útgefandi: Una útgáfuhús
Allt sem rennur eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur. Útgefandi: Benedikt
Sjófuglinn eftir Egil Ólafsson. Útgefandi: Bjartur
Urta eftir Gerði Kristnýju. Útgefandi: Mál og menning
Máltaka á stríðstímum eftir Natöshu S. Útgefandi Una útgáfuhús
Plómur eftir Sunnu Dís Másdóttur. Útgefandi: Mál og menning
Tilnefndar bækur eru allar til sýnis í anddyri Þjóðarbókhlöðunnar frá og með fimmtudeginum 27. apríl.
Gjaldgengar voru allar útgefnar íslenskar ljóðabækur ársins 2022, alls 93, sem skilað var til Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns og fékk dómnefnd þær til umfjöllunar. Dómnefnd skipa Arnór Ingi Hjartarson fyrir hönd Rithöfundasambandsins og Emma Björk Hjálmarsdóttir fyrir hönd Landsbókasafnsins.
Verðlaunin verða veitt við athöfn í Þjóðarbókhlöðunni þann 24. maí.
Maístjarnan er einu verðlaun á Íslandi sem veitt eru eingöngu fyrir útgefna íslenska ljóðabók. Verðlaununum er ætlað að vekja sérstaka athygli á blómlegri ljóðabókaútgáfu á Íslandi.