Ofurvættir
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2022 | 355 | 4.890 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 2.690 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2022 | 355 | 4.890 kr. | ||
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 2.690 kr. | Setja í körfu | |
Rafbók | 2022 | 2.990 kr. |
Um bókina
Eftir bardagann við Baldurshaug eru Bjarni, Hildur, Theódóra og Baldur tvístruð um veröldina. Heimsgáttir milli tilvera hafa opnast og ógna öllu lífi. Nú verða þau hvert fyrir sig að efla krafta sína því að hryllingurinn sem flæðir á milli heima er miklu öflugri en nokkuð sem þau hafa áður séð.
Ólafur Gunnar Guðlaugsson hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Ljósbera, fyrstu bókina í þríleiknum um síðasta seiðskrattann. Í Ofurvættum heldur hann sögunni áfram í kynngimögnuðum spennutrylli fyrir ungmenni á öllum aldri.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 8 klukkustundir og 52 mínútur að lengd. Guðmundur Felixson, Haraldur Ari Stefánsson, Sigríður Lárétta Jónsdóttir, Þórdís Björk Þorfinnsdóttir, Pétur Eggerz lesa.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
2 umsagnir um Ofurvættir
embla –
„Sagan er eins og fyrri bókin virkilega spennandi og mjög margslungin. … Höfundur á auðvelt með að kalla fram myndræn tilþrif í huga magnaða spennutrylli og tekst vel að blanda saman yfirnáttúrulegum atburðum við íslenskan veruleika í bland við galdra, seiði og fjarnæmi. Ég bíð spennt eftir lokakaflanum.“
Rósa Harðardóttir / Morgunblaðið
embla –
„Ofurvættir ætti að gleðja unnendur góðra fantasíubóka og þau sem hrifust af Ljósberanum verða ekki fyrir vonbrigðum með þetta framhald.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið