Veiðimennirnir: Deild Q #2
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Hljóðbók - streymi | 2022 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Árið 1987 fundust tvö systkini myrt á hrottafenginn hátt í sumarbústað á Sjálandi. Grunur beindist að hópi ungmenna úr efnuðum fjölskyldum en sannanir skorti og enginn var sakfelldur. Níu árum seinna játaði þó einn pilturinn á sig morðin og málið virtist leyst.
Dag nokkurn árið 2007 liggja gömlu málsskjölin á borði Carls Mørck, forstöðumanns Deildar Q hjá dönsku lögreglunni. Hann áttar sig fljótlega á að þar er ekki allt með felldu og hefur rannsókn ásamt Assadi aðstoðarmanni sínum. Málið teygir sig frá aumri útigangskonu í miðborg Kaupmannahafnar til þriggja af auðugustu og valdamestu mönnum landsins. Og auðmennirnir eru líka á hælum konunnar því að hún býr yfir vitneskju sem getur komið þeim á kaldan klaka. Veiðarnar eru hafnar – hver hremmir bráðina?
Jussi Adler-Olsen (f. 1950) er einn vinsælasti glæpasagnahöfundur Norðurlanda um þessar mundir. Veiðimennirnir er önnur bókin í seríunni um Carl Mørck og Deild Q. Fyrsta bókin, Konan í búrinu, kom út á íslensku á síðasta ári og vakti mikla athygli og aðdáun.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 14 klukkustundir og 49 mínútur að lengd. Davíð Guðbrandsson les.