Bækurnar Bál tímans eftir Arndísi Þórarinsdóttur, Sigmundur B. Þorgeirsson myndlýsti, og Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að eyðileggja eftir Gunnar Helgason, Rán Flygenring myndlýsti, eru tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráð 2022 fyrir Íslands hönd. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Helsinki 1. nóvember. Verðlaunahafinn hlýtur verðlaunagripinn Norðurljós og 300 þúsund danskar krónur sem samsvarar rúmum 5,7 milljónum íslenskra króna.