Sigurverkið
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 315 | 3.990 kr. | ||
Kilja | 2023 | 315 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 315 | 3.990 kr. | ||
Kilja | 2023 | 315 | 3.690 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Sigurverkið er söguleg skáldsaga sem gerist á sunnanverðum Vestfjörðum og í Kaupmannahöfn á 18. öld; margslungin og harmræn frásögn sem lýsir á áhrifaríkan hátt beiskum örlögum alþýðufólks og valdinu sem það er undirselt.
Íslenskur úrsmiður situr í höll Danakonungs og gerir upp forna glæsiklukku. Kvöld eitt rekst sjálfur einvaldurinn, Kristján sjöundi, inn til hans; að nafninu til enn höfuð ríkisins en þykir ekki með öllum mjalla og hefur verið ýtt til hliðar af syni sínum og hirð. Þeir taka tal saman og svo fer að úrsmiðurinn rekur fyrir hátigninni dapurlega sögu föður síns og fóstru sem tekin voru af lífi að skipan fyrri konungs, föður Kristjáns.
Arnaldur Indriðason hefur verið vinsælasti höfundur landsins í áratugi. Sigurverkið er tuttugasta og fimmta skáldsaga hans og hér fetar hann nýja slóð, því bókin er að hluta byggð á raunverulegum atburðum og persónum sem stíga hér fram á sviðið í afar trúverðugri og grípandi sögu.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Jóhann Sigurðarson les.
Hér má hlusta á hljóðbrot úr bókinni:
5 umsagnir um Sigurverkið
embla –
„Höfundur slær hér nýjan tón frá fyrri verkum með sögulegri skáldsögu þar sem persónur úr íslenskum og dönskum veruleika fyrri alda leiða söguna áfram. Harmræn örlagasaga, skrifuð af viðkvæmni og virðingu fyrir sögupersónunum, í fallegum og grípandi texta sem vekur samkennd og sterkar tilfinningar lesenda.“
Umsöng dómnefndar Íslensku bókmenntaverðlaunanna
embla –
„[…] grípandi, áhugaverð og listavel sögð.“
Einar Falur Ingólfsson / Morgunblaðið
embla –
„Mér finnst þetta vel heppnuð söguleg skáldsaga sem ég held að margir lesendur muni tengja við.“
Kolbrún Bergþórsdóttir / Kiljan
embla –
„… snilldarvel unnin söguleg skáldsaga.“
Kristján Jóhann Jónsson / Fréttablaðið
embla –
„Sagan er grípandi og ég sem lesandi lifði mig virkilega inn í söguna.“
Jana Hjörvar / Lestrarklefinn