Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Tunglið tunglið taktu mig
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 219 | 4.490 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2021 | 219 | 4.490 kr. | ||
Rafbók | 2021 | 1.990 kr. |
Um bókina
Einlæg og skemmtileg saga eftir Þorgrím Þráinsson. Máney á heima í sveitinni hjá ömmu og afa, og hún vill hvergi annars staðar vera. Þegar Sólmundur flytur á næsta bæ er hann eins og geimvera og gargar á alla. En þegar þau bjarga álftaregginu frá tófunni breytist allt. Það besta er þó að Sólmundur á litla systur sem getur kannski orðið systir Máneyjar líka. Þorgrímur hefur skrifað fjölda vinsælla barna- og unglingabóka. Hann hlaut Íslensku barnabókaverðlaunin fyrir Ertu guð, afi? og Margt býr í myrkrinu, hefur tvívegis verið sæmdur Bókaverðlaunum barnanna og tók á móti Viðurkenningu Barnaheilla fyrir sérstakt framlag í þágu barna og mannréttinda þeirra.
1 umsögn um Tunglið tunglið taktu mig
embla –
„Ágætis bók um nútímabörn sem finna sig í nostalgískri sveitasælu.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið