TMM 4. hefti 2011
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2011 | 151 | 1.765 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2011 | 151 | 1.765 kr. |
Um bókina
Í fjórða og síðasta hefti Tímarits Máls og menningar á þessu ári er meðal efnis er grein eftir Guðna Elísson um loftslagsmál og olíuleit þar sem Guðni færir fram rök fyrir því að ekki verði farið út í olíuvinnslu á svonefndu drekasvæði; Guðmundur Páll Ólafsson birtir ávarp um náttúruvernd sem hann flutti á Umhverfisþingi 2011 en Jón Baldvin Hannibalsson skrifar um frelsi og jöfnuð – stefnumið handa jafnaðarmönnum á öld ójafnaðar.
Kristín Einarsdóttir þjóðfræðingur rýnir í hið árlega og séríslenska Áramótaskaup, Njörður P. Njarðvík fjallar um Íslandsklukkuna og Þórarinn Hjartarson skrifar um arfleið Mára í vestrænni menningu. Tvær greinar eru um Gyrði Elíasson, eftir Bergljótu Soffíu Kristjánsdóttur og Þröst Helgason og að auki eru í tímaritinu að vanda sögur og ljóð, ádrepur og umsagnir um bækur.
Ritstjóri er Guðmundur Andri Thorsson.