Málverkafölsunarmálið – Norræn sakamál 2007

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 990 kr. Setja í körfu

Málverkafölsunarmálið – Norræn sakamál 2007

990 kr.

Málverkafölsunarmálið - Norræn sakamál 2007
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Hljóðbók 2021 App 990 kr. Setja í körfu

Um bókina

Sumarið 1997 hófst ein umfangsmesta lögreglurannsókn sem fram hefur farið á Íslandi, rannsókn sem hefur gengið undir nafninu Málverkafölsunarmálið. Málið snerist um að forráðamaður stærsta uppboðshúss landsins var grunaður um að hafa falsað eða látið falsa hátt í 200 málverk eftir flesta þekktustu og dáðustu listmálara Íslands og síðan blekkt viðskiptavini til að kaupa verkin. Grunur lék á um að um skipulagða brotastarfsemi hefði verið að ræða sem hafi staðið yfir árum saman.

Mikið var fjallað um málið í fjölmiðlum enda hafði það slík áhrif á málverkamarkaðinn á Íslandi að eftirspurn eftir myndverkum eftir látna, íslenska málara dróst verulega saman og verð féllu. Vantraust ríkti á íslenskum listaverkamarkaði sem varla hefur gróið um heilt enn. Áhrifin, sem málið hafði á feril og orðspor listamannanna sjálfra, voru þó enn alvarlegri, ekki síst þar sem þeir voru allir látnir og gátu því ekki sjálfir borið hönd fyrir höfuð sér.
Segja má að tilraun hafi verið gerð til að breyta ásýnd og listamannaferli 13 af ástsælustu listmálurum Íslands.

Heildarrannsókn málsins tók alls um 6 ár en ekki var unnt að beita hefðbundnum rannsóknaraðferðum nema að litlu leyti enda hafði engin sambærileg rannsókn fyrr verið framkvæmd á Íslandi. Þrátt fyrir nákvæmar athuganir víða um heim gátu rannsóknarar ekki fundið erlendar rannsóknir sem unnt var að byggja einstaka rannsóknarþætti á heldur urðu þeir að leita til fjölmargra innlendra og erlendra sérfræðinga og raða einstökum niðurstöðum þeirra saman í rannsóknarniðurstöður.

Í þessari grein verður fjallað um fyrri hluta þessa máls sem varðar 3 málverk en sérstök ákæra var gefin út vegna þess hluta. Um síðari hluta málsins, sem snerist um 180 myndverk, verður fjallað síðar.

ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.

Hljóðbókin er 53 mínútur að lengd. Hjálmar Hjálmarsson les.

Tengdar bækur

Allt í lagi þið náðuð mér! - Norræn sakamál
990 kr.
Skemmtisigling sem snerist upp í andhverfu sína - Norræn sakamál 2007
790 kr.
Kynferðisbrot, þolendur oftast einir til frásagna! - Norræn sakamál 2007
790 kr.
Fíkniefni á Hólmsheiði – Norræn sakamál 2007
790 kr.
Milljónaarfur var ástæða morðs – Norræn sakamál 2007
990 kr.
Sveðjumálið - Norræn sakamál 2007
790 kr.
Maðurinn sem náðist ekki – Norræn sakamál 2007
990 kr.
Bílsprengjumorðið við Kamppitorg - Norræn sakamál 2007
790 kr.
Nágrannaerjur enduðu með morði - Norræn sakamál 2007
790 kr.
Stórfelld fjárkúgun – Norræn sakamál 2007
790 kr.
Náriðillinn var líka brennuvargur - Norræn sakamál 2007
990 kr.
Mál Bobbys skók sænsku þjóðina - Norræn sakamál 2007
1.490 kr.

INNskráning

Nýskráning