Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Heimferðarsett
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2021 | 62 | 3.990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Mjúk spjöld | 2021 | 62 | 3.990 kr. |
Um bókina
Er lítið kríli á leiðinni? Fátt er jafn gaman fyrir þá sem prjóna og að fitja upp á flík handa litlu barni.
Það er gömul og góð hefð að nýfætt barn fái heimaprjónaðar flíkur. Það fer vel á því að klæða smábarn í hlý og mjúk ullarföt og eru heimferðarsett mjög vinsæl hjá nýbökuðum foreldrum. Hér eru uppskriftir að peysum, húfum, samfellum og öðru fallegu og fínlegu prjónlesi fyrir ungbörn. Uppskriftirnar eru fyrir börn frá fæðingu til sex mánaða aldurs.
Heimferðarsett er ný bók frá Prjónafjelaginu en það hefur áður sent frá sér vinsælar prjónabækur fyrir börn á leikskólaaldri; Leikskólaföt og Leikskólaföt 2.
Smellið hér til að sjá skjal með leiðréttingum.