Borgfirðinga sögur: Íslenzk fornrit III

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2001 365 5.390 kr.
spinner

Borgfirðinga sögur: Íslenzk fornrit III

5.390 kr.

Borgfirðinga sögur: Íslenzk fornrit III
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2001 365 5.390 kr.
spinner

Um bókina

Hænsa-Þóris saga greinir frá atburðum sem gerðust á árunum 961–65, en mun rituð seint á 13. öld. Hænsa-Þórir var maður óvinsæll sem auðgaðist af kaupskap, meðal annars sölu hænsna. Hann brennir inni ágætan höfðingja af litlu tilefni og hlýtur fyrir það makleg málagjöld. Sagan er snotur og vel sögð og efnið átakanlegt.

Gunnlaugs saga ormstungu er rituð seint á 13. öld. Hún hefst á spádraumi Þorsteins Egilssonar á Borg. Óborin dóttir hans, Helga hin fagra, birtist í drauminum sem væn álft, en ernir tveir berjast um hana með beittum klóm; þeir tákna skáldin Gunnlaug ormstungu og Hrafn Önundarson sem síðar berjast um ástir Helgu. Þetta er snilldarleg rómantísk harmsaga sem hefur jafnan notið mikilla vinsælda bæði heima og erlendis.

Bjarnar saga Hítdælakappa líkist Gunnlaugs sögu að efni, en er miklu frumstæðari að list og mun rituð alllöngu áður. Hér eru það skáldin Björn Arngeirsson og Þórður Kolbeinsson sem keppa um ástir hinnar fögru Oddnýjar eykyndils. Sagan er höll Birni, en Þórður hreppir konuna og stendur að lokum yfir höfuðsvörðum andstæðingsins.

Heiðarvíga saga er að mörgu leyti frumstæð og fornleg enda oft talin elst allra Íslendingasagna. Fyrri hluti sögunnar hermir frá Víga-Styr, miklum ójafnaðarmanni sem fær makleg málagjöld er ungur sveinn vegur hann til hefnda eftir föður sinn. Í síðara hluta sögunnar segir frá ófriði milli Húnvetninga og Borgfirðinga og mikilli orrustu sem þeir háðu á heiðinni milli héraða. Sagan er illa varðveitt, og er fyrri hlutinn aðeins til í endursögn Jóns Ólafssonar úr Grunnavík.

Gísls þáttur Illugasonar greinir frá því hversu söguhetjan hefnir föður síns og vegur Gjafvald, hirðmann Magnúsar berfætts Noregskonungs. Íslendingar í Noregi styðja Gísl dyggilega undir forystu Teits, sonar Gissurar Skálholtsbiskups, og Jóns Ögmundarsonar er síðar var biskup á Hólum. Um síðir kemst Gísl í sátt við konunginn og skipar rúm Gjafvalds við hirðina. Þetta er fögur dæmisaga um dirfsku og staðfestu, drengskap og vináttu.

Sigurður Nordal og Guðni Jónsson gáfu út með inngangi og skýringum.

Tengdar bækur

2.990 kr.
2.990 kr.
Gurra_komum a koppin Frontur_HQ
3.390 kr.
skuggi vindsins
990 kr.1.690 kr.
1.590 kr.
8.190 kr.
1.590 kr.
3.690 kr.5.490 kr.
2.290 kr.
Utangardsborn_1500x1500
990 kr.1.290 kr.
Sturlunga
14.890 kr.
Orkneyinga saga
5.390 kr.
Morkinskinna I&II: Íslenzk fornrit XXIII and XIV
8.890 kr.
Danakonunga sögur: Íslenzk fornrit XXXV
5.390 kr.
Hákonar saga I&II: Íslenzk fornrit XXXI–XXXII
8.890 kr.
Sverris saga: Íslenzk fornrit XXX
5.390 kr.
Ágrip af Noregskonungasögum - Fagurskinna Noregs konunga tal: Íslenzk fornrit XXIX
5.390 kr.
Heimskringla III: Íslenzk fornrit XXVIII
5.390 kr.
Heimskringla II: Íslenzk fornrit XXVII
5.390 kr.
Heimskringla I: Íslenzk fornrit XXVI
5.390 kr.
Færeyinga saga - Ólafs saga odds
5.390 kr.
Biskupa sögur III: Íslenzk fornrit XVII
5.390 kr.

INNskráning

Nýskráning