Draumar á jörðu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2000 | 222 | 990 kr. | ||
Kilja | 2002 | 222 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2000 | 222 | 990 kr. | ||
Kilja | 2002 | 222 | 990 kr. | ||
Rafbók | 2016 | 990 kr. |
Um bókina
Þessi heillandi skáldsaga gerist á fyrri hluta tuttugustu aldar, á tímum kreppu og erfiðrar lífsbaráttu á Íslandi. Að auki herjar á landsmenn hvíti dauði, eins og berklarnir voru jafnan kallaðir. En þótt mörgum séu ásköpuð þung örlög mætir fjölskyldan á Sjómannastígnum hörðum kjörum af lífsvilja og lífsgleði, enda hillir undir nýja tíma og nýja von fyrir fátækt fólk.
Hér segir frá þeim minnisstæðu og litríku persónum sem kynntar voru til sögunnar í skáldsögunni Fótspor á himnum. Skáldið styðst við sögulegar heimildir en fléttar saman þjóðtrú, ljóðrænar stemningar og hugarflug þannig að úr verður óvenjulega hrífandi þjóðarsaga.
Einar Már Guðmundsson er hópi virtustu og vinsælustu rithöfunda þjóðarinnar og hefur hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga fyrir bækur sínar, ekki síst Engla alheimsins sem færði honum bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs og hefur komið út í átján þjóðlöndum.
Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2000.