Árbók 2010 – Friðland að Fjallabaki

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 288 8.190 kr.
spinner

Árbók 2010 – Friðland að Fjallabaki

8.190 kr.

Árbók 2010 - Friðland að Fjallabaki
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2010 288 8.190 kr.
spinner

Um bókina

Árbók FÍ 2010 fjallar um eitt fegursta svæði Íslands, Friðland að Fjallabaki. en þar eru Landmannalaugar og nágrenni í öndvegi. Höfundur bókarinnar er Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ. Kaflann um Náttúrufar í Friðlandi að Fjallabaki er eftir Ásrúnu Elmarsdóttur, Kristinn Hauk Skarphéðinsson, Kristján Jónasson og Sigmund Einarsson.

Friðland að Fjallabaki er eitt fegursta svæði Íslands og náttúrufar þar einstakt á heimsvísu. Bók, sem fjallar um slíkt svæði, nær aldrei að fanga viðfangsefnið til fulls en reynt hefur verið að birta lesandanum sem flest af áhugaverðum einkennum friðlandsins.

Náttúrufari, landi og staðháttum er lýst og getið örnefna og greindur uppruni þeirra eftir því sem kostur er. Saga mannaferða um friðlandið er rakin en hún er að mestu bundin við sauðfjárbúskap nálægra héraða. Annars vegar eru fjallferðir og smalamennska á Landmannaafrétti og hins vegar fjárrekstrar Skaftfellinga. Vörður og gömul sæluhús eru hluti af þeirri atvinnusögu. Þá er einnig sagt frá fyrstu ferðum og náttúrurannsóknum að Fjallabaki frá upphafi og fram til aldamótanna 1900. Loks eru kaflar um ferðamennsku að Fjallabaki, einkum í Landmannalaugum, bæði rómantískar fjallaferðir þangað fyrr á árum og uppbyggingu á ferðaþjónustu Ferðafélags Íslands í Laugum.

Kaflar í bókinni

  • Fegurð og náttúruverðmæti
  • Náttúrufar í Friðlandi að Fjallabaki
  • Stiklað um Friðland að Fjallabaki
  • Gönguleiðir
  • Vetrarferðir að Fjallabaki
  • Fjallferðir
  • Rannsóknir og fyrstu ferðir
  • Fjárrekstrar um Fjallabaksveg
  • Útilegumenn
  • Vörður og sæluhús á Fjallabaksvegi nyrðri
  • Ferðafélag Íslands í Landmannalaugum
  • Ferðir í Landmannalaugar á 20. öld

Tengdar bækur

The Laugavegur Hiking Trail
1.690 kr.
Árbók 2017 - Við Djúpið blátt: Ísafjarðardjúp
8.090 kr.
Árbók 2016 - Skagafjörður austan Vatna: Frá Hjaltadal að Úlfsdölum
7.490 kr.
Árbók 2015 Vestur-Húnavatnssýsla frá Hrútafjarðará að Gljúfurá
7.490 kr.
Árbók 2014 - Skagafjörður austan Vatna: frá Jökli að Furðuströndum
7.390 kr.
Árbók 2012 - Skagafjörður vestan Vatna: frá Skagatá að Jökli
7.190 kr.
Árbók 2011 - Í Dali vestur
7.190 kr.

INNskráning

Nýskráning