Á hálum ís

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 336 3.490 kr.
spinner

Á hálum ís

3.490 kr.

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2019 336 3.490 kr.
spinner

Um bókina

Tveir smákrimmar ræna einn stærsta eiturlyfjasalann í Reykjavík. Þeir höfðu lagt á ráðin um að komast fljótt til sólarlanda með ránsfenginn sem er há fjárhæð í evru-seðlum. En allar ráðagerðir fara út í veður og vind þegar flóttabíllinn kemur ekki á tilsettum tíma.

Þeir ræna í staðinn bíl tveggja kvenna og neyða konurnar til að fara með sér út í sveit. Þar fara þeir í felur á afskekktu sveitahóteli sem er lokað yfir veturinn. Það kyngir niður snjó og spennan magnast á hótelinu meðan krimmarnir leggja á ráðin um næstu skref. Yfir þeim vofir hrottafengin hefnd eiturlyfjasalans og leit lögreglunnar að mannræningjum kvennanna. Í hönd fer æsileg atburðarás með kómísku ívafi og óvæntum uppákomum.

Rannsóknarlögreglumaðurinn Gunnhildur Gísladóttir og aðstoðarmenn hennar í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu rannsaka hvarf kvennanna. Þetta er önnur bókin um Gunnu sem kemur út á íslensku. Fyrri bókin, Bláköld lygi, fékk hinar bestu viðtökur.

Enski blaðaðmaðurinn og rithöfundurinn Quentin Bates hefur tekið ástfóstri við Ísland og glæpasögur hans gerast allar á Íslandi.

Tengdar bækur

helköld
3.690 kr.
Kuldagustur
3.690 kr.
Bláköld lygi
3.390 kr.
2.990 kr.4.290 kr.
2.990 kr.4.290 kr.
Konan í blokkinni eftir Jónínu Leós
990 kr.1.290 kr.
Spegilmennið
1.290 kr.3.490 kr.
490 kr.3.490 kr.
Hún á afmæli í dag
2.190 kr.3.490 kr.
Heyrðu mig hvísla
2.190 kr.3.490 kr.
Lasarus - Lars Kepler
990 kr.3.490 kr.
Dávaldurinn
990 kr.1.490 kr.
490 kr.3.490 kr.
1794
1.490 kr.3.490 kr.

INNskráning

Nýskráning