Hin ósýnilegu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 266 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2019 | 266 | 3.490 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. | |||
Hljóðbók - streymi | 2021 | App | 1.990 kr. | Setja í körfu |
Um bókina
Hin ósýnilegu er sterk og áhrifamikil saga um horfinn veruleika, hugdirfsku og fagra en óblíða náttúru.
Ingrid elst upp á lítilli eyju við strönd Norður-Noregs snemma á síðustu öld. Heimur hennar er Barrey og fjölskyldan – foreldrar hennar, afi og frænka, litli frændinn, húsdýrin, fuglarnir, fiskarnir, stormar, ís og sjór. Einangruð veröld þar sem gestir gægjast þó af og til inn. Lífsbaráttan er hörð en fólkið á sínar vonir og framtíðardrauma. Faðirinn vill koma upp bryggju til að tengja eyna við umheiminn en náttúruöflin eru á öðru máli. Og svo taka óblíð örlögin í taumana og Ingrid þarf að berjast til að bjarga eynni sem hún hélt að hún gæti yfirgefið.
Norski rithöfundurinn Roy Jacobsen hefur tvívegis hlotið tilnefningu til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs fyrir verk sín. Hin ósýnilegu var tilnefnd til alþjóðlegu Man Bookerverðlaunanna 2017, fyrst norskra bóka, og hefur verið þýdd á fjölmörg tungumál.
Jón St. Kristjánsson þýddi.
ATH. Hljóðbókin er afhent rafrænt og hægt er að hlusta á hana beint í gegnum app Forlagsins eða vafra. Hér má lesa meira um hljóðbækur fyrir appið.
Hljóðbókin er 6 klukkustundir og 51 mínútur að lengd. Berglind Jónsdóttir les.
Hér má hlusta á brot úr hljóðbókinni:
7 umsagnir um Hin ósýnilegu
Arnar –
„Óvenjulega fallega skrifuð, áhrifamikil og heillandi bók um sambands manns og náttúru, fólks við hvert annað og staðinn sinn og svo ótal margt fleira.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
gudnord –
„Maður heillast algjörlega af þessu, ofsalega fallega skrifað.“
Þorgeir Tryggvason / Kiljan
Elín Pálsdóttir –
„Þessi magnaða skáldsaga Roys Jacobsen ber nafnið Hin ósýnilegu en hún á eftir að verða sýnileg lengi.“
Tønsbergs Blad
Elín Pálsdóttir –
„Falleg og hrífandi lestrarupplifun … Meistaraleg lýsing á því stóra í hinu smáa.“
VG
Elín Pálsdóttir –
„… óvenjulega vel sögð saga!“
Trønder-Avisa
Elín Pálsdóttir –
„… heillandi mynd af horfnum tíma, dregin upp á máli sem er jafn tært og hreint og veröldin eftir mikið óveður.“
Guardian
Elín Pálsdóttir –
„… lágstemmt meistaraverk.“
Litteratursiden.dk