Styrjöldin í Selinu – upprifjun

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 160 2.690 kr.
spinner

Styrjöldin í Selinu – upprifjun

2.690 kr.

Styrjöldin í Selinu - upprifjun
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Innbundin 2019 160 2.690 kr.
spinner

Um bókina

Í febrúar 1965 var þriðja heimsstyrjöldin sett á svið í Menntaskólaselinu. Atburðurinn brenndi sig í vitund grandalausra nemendanna, þáverandi fjórðubekkinga í MR, þannig að enginn er samur eftir, meira en hálfri öld síðar. Í þessari bók, Styrjöldin í Selinu, sem er prýdd fjölmörgum ljósmyndum, rifja þolendur og gerendur upp viðburðinn og skoða í víðara samhengi.

Meðal „fórnarlambanna“ í Selinu var Ágúst Guðmundsson, síðar kvikmyndagerðarmaður. Þessi eftirminnilega Selsferð varð síðar kveikjan að sjónvarpsmynd hans, Skólaferð, sem frumsýnd var í Sjónvarpinu 1978. Ágúst fékk hugmyndina að myndinni árið 1971, sex árum eftir atburðinn, og tók þá viðtöl við fjölda nemenda sem voru í ferðinni. Þau eru birt í bókinni og varpa merkilegu ljósi á uppákomuna sem varð æsilegt blaðaefni næstu daga á eftir. Þá eru birtar samtímadagbókarfærslur hans og Ásgeirs Sigurgestssonar sálfræðings. Í öðrum kafla setur Ásgeir atburðinn í samhengi við sambærilega viðburði erlendis og hugmyndir sálfræðinga um hópsefjun. Nokkrir nemendur líta til baka og setja hugleiðingar sínar á blað. Rætt er við Eirík Haraldsson kennara, sem var í ferðinni, og Sigurður St. Arnalds verkfræðingur segir frá því hvernig hugmyndin að útvarpsgabbinu varð til.

Ritnefnd skipuðu:
Ágúst Guðmundsson
Ásgeir Sigurgestsson
Gísli Már Gíslason
Heimir Sindrason
Sigurður St. Arnalds

Tengdar bækur

3.990 kr.4.690 kr.
3.690 kr.5.490 kr.
3.990 kr.4.690 kr.
3.990 kr.4.690 kr.
3.690 kr.4.590 kr.
Guðni: Flói bernsku minnar
3.490 kr.3.890 kr.
1.990 kr.3.690 kr.
markús á flótta í 40 ár
5.190 kr.
Veistu ef vin þú átt
3.490 kr.3.790 kr.
samþykki
1.990 kr.3.490 kr.
11000 volt
6.090 kr.

INNskráning

Nýskráning