Rauður maður/Svartur maður

Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 551 4.290 kr.
spinner

Rauður maður/Svartur maður

4.290 kr.

Rauður maður/Svartur maður
Gerð ÚtgáfuárSíðurVerðMagn
Kilja 2018 551 4.290 kr.
spinner

Um bókina

„Ég stend niðri í fjöru og sé bátinn nálgast. Segl, fjóra ræðara ásamt prestinum og sonum hans tveimur. Í fanginu held ég á barninu, eina drengnum sem ég á eftir. Og ég veit að ég neyðist til að gefa hann frá mér. Annars deyr hann.“

Í öðrum hluta Grænlandstrílógíu sinnar leitar Kim Leine fanga aftur til 18. aldar, í nýlendustofnun Dana á Grænlandi. Særingamaðurinn Aappaluttoq, Rauður, bjargar lífi fársjúks sonar með því að koma honum í fóstur hjá trúboðanum Hans Egede og Gertrud eiginkonu hans. Þvert gegn vilja Rauðs er drengnum aldrei skilað því maðurinn í svörtu hempunni ákveður að skíra drenginn og halda honum hjá sér.

Á þessu afdrifaríka atviki hefst mergjuð skáldsaga Kims Leine um upphaf kristniboðs og nýlenduvæðingar á Grænlandi, lygileg tildrög hennar, ævintýralega framkvæmdina og hræðilegar afleiðingar, bæði fyrir nýlendubúana dönsku og Grænlendinga sjálfa. Stílsnilld Leine er söm við sig, atburðarásin og lýsingarnar eru hér ennþá magnaðri en í fyrstu sögulegu skáldsögu hans, Spámennirnir í Botnleysufirði. Hér fer höfundurinn þó nær skjalfestum veruleika því flestar hinna fjölmörgu eftirminnilegu persóna eiga sér sögulegar fyrirmyndir og atburðirnir sem eru hvað ótrúlegastir áttu sér stað í raun og veru.

Rauður maður/Svartur maður er stórvirki í öllum skilningi, saga um árekstur ólíkra menningarheima og baráttu við hrikaleg náttúruöfl, saga um feður og syni, dauða og drykkjuskap, sturlun og stærilæti, guðstrú og glötun, uppgjöf og uppljómun sálarinnar.

Tengdar bækur

Valdimarsdagur
3.190 kr.
Kalak
3.290 kr.4.390 kr.
Spamennirnir i Botnleysufirdi
1.690 kr.
Lífsnautnin frjóa - Anne B. Ragde
990 kr.3.490 kr.
Blindgöng
3.490 kr.
1.990 kr.3.490 kr.
Sögur frá Sovétríkjunum
1.190 kr.5.690 kr.
Augu Rigels
1.990 kr.3.490 kr.
Hin ósýnilegu
990 kr.3.490 kr.
Yfir höfin
1.990 kr.3.490 kr.
Hundagerðið
1.990 kr.3.490 kr.
Næsti!
1.690 kr.1.990 kr.
Leiðin í klukknaríki
4.690 kr.
Brostnar væntingar
5.090 kr.
Gegnum vötn, gegnum eld
1.490 kr.3.490 kr.

INNskráning

Nýskráning