Sigurtunga
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 5.190 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 5.190 kr. |
Um bókina
Þessi bók er safn greina um vesturíslenskt mál og menningu eftir tuttugu höfunda. Þær tengjast nýjum rannsóknum á máli og menningarlegri sjálfsmynd fólks af íslenskum uppruna í Vesturheimi og fjalla um sögu og bókmenntir vesturfaranna og þróun þeirrar íslensku sem hefur verið töluð vestra.
Íslenskan í Vesturheimi, vesturíslenska, er svokallað erfðarmál, en svo nefnast þau mál sem innflytjendur og afkomendur þeirra tala í samfélagi þar sem annað tungumál er ríkjandi. Rannsóknir á eðli og örlögum slíkra mála hafa notið vaxandi vinsælda víða um heim á undanförnum árum og rannsóknir á vesturíslensku eru framlag til þeirra fræða. Í bókinni er að finna yfirlit um þessar rannsóknir og sögu og bókmenntir vesturfaranna og afkomenda þeirra. Þótt sumar greinarnar fjalli um flókin fræðileg efni er lagt kapp á framsetning þeirra sé aðgengileg, enda er bókin ætluð öllum þeim sem hafa áhuga á vesturíslenskum málefnum.
Ritstjórar eru Birna Arnbjörnsdóttir, Höskuldur Þráinsson og Úlfar Bragason en forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, skrifar formálsorð.