Bæta á óskalistaEr á óskalista
Bæta á óskalista
Vestfirðingar til sjós og lands: 2. bók
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 112 | 1.390 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Kilja | 2018 | 112 | 1.390 kr. |
Um bókina
Bókin sú arna hefur að geyma ýmsar frásagnir af Vestfirðingum, lífs og liðnum. Bæði í gamni og alvöru.
Tilgangurinn: Að vekja athygli og áhuga á Vestfjörðum og innbyggjurum þeirra fyrr og síðar. Og varðveita ýmsar sögur og sagnir sem að öðrum kosti hefðu farið í glatkistuna. Til þess var Vestfirska forlagið einmitt stofnað. Kannski bara af hugsjón. En ekki til að græða peninga.
Ef einhver ber af í þjóðfélagi okkar, eða er öðruvísi en aðrir, er hann oftar en ekki Vestfirðingur eða af vestfirskum ættum. Svo segja sumir. Og bæta jafnvel við: Manngildi meta Vestfirðingar í dugnaði og slíkum eiginleikum, en síður í peningum. Gamansemi er þeirra lífselexír.