Sjóveikur í Munchen

„Ó, hvað það er vont að vera ungur!“

„Ó, hvað það var vont að vera ungur! Hreinn sveinn í óhreinum heimi. Fangi eigin kynslóðar. Þræll í hlekkjum tímans. Og sjálfið eins og óframkölluð mynd í köldum vökva. Köldum, dimmum, vodkaskotnum vökva.“

Í nýrri bók sinni, Sjóveikur í München, gengur Hallgrímur Helgason á hólm við sjálfan sig og lýsir örlagavetri í eigin lífi, sínum fyrsta utan föðurlands og móðurhúsa.

Bókin er grátbrosleg og hispurslaus sköpunarsaga eins fremsta höfundar okkar sem ungur tók þá róttæku ákvörðun að helga sig myndlist og skráir sig haustið 1981 til náms í Listaakademíunni í München – af öllum borgum.

Sú vist verður honum ekki bara þungbær heldur reynist hún marka braut hans til frambúðar. Hann tekst á við hræringar í eigin huga, lýsir þeirri ólgu sem gerjast innra með honum og þeim áhrifum sem hann verður fyrir, um leið og hann reynir að botna í sjálfum sér.

Bókin kom út samtímis á íslensku og þýsku en lesendur á meginlandinu hafa tekið bókum Hallgríms vel – ekki síst þeirri síðustu, Konan við 1000°. Beinskeyttur stíll höfundar, skörp hugsun og húmor gera bókina ekki einungis skemmtilega aflestrar heldur einnig afar áhrifamikla.

INNskráning

Nýskráning