Vísindabók Villa 2

Þú! Já, þú. Þú ert ofurhetja!

Í dag kom út Vísindabók Villa 2 og fylgir eftir ógurlegum vinsældum fyrri bókarinnar sem kom út fyrir jólin í fyrra. Nú er Villi snúinn aftur með enn meiri fróðleik og stuð! OG OFURHETJUR!

Vísindin eru ótæmandi brunnur því heimurinn okkar er svo rosalega merkilegur og skrýtinn. Sumt virðist flókið en er einfalt, en annað sem virðist sáraeinfalt og hversdagslegt er í rauninni hrikalega flókið. Þá er heppilegt að hver einasta manneskja sem er forvitin um heiminn í kringum sig er ofurhetja. Já, þú last rétt: ofurhetja!

Vísindabók Villa slóg rækilega í gegn í fyrra og hér heldur Villi áfram að fjalla á skemmtilegan og einfaldan hátt um undur alheimsins og vísindanna, meðal annars dínamít, lofthjúpinn, andefni, steingervinga og snjókorn. Bókin geymir auk þess fjölda skemmtilegra tilrauna sem hægt er að gera heima.

Vísindabók Villa 2 opnar leið inn í undraheim vísindanna sem gaman er að týna sér í.

Áfram ofurhetja!

INNskráning

Nýskráning