Jakobína: saga skálds og konu
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 420 | 5.990 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Gerð | Útgáfuár | Síður | Verð | Magn | |
---|---|---|---|---|---|
Innbundin | 2019 | 420 | 5.990 kr. | ||
Rafbók | 2019 | 990 kr. |
Um bókina
Jakobína Sigurðardóttir rithöfundur og skáld ólst upp í sárri fátækt á Hornströndum. Fjölskyldan var stór og samheldin, guðsorð og bókmenntir haldreipið í harðri lífsbaráttu. Ung mátti hún gefa menntadrauma sína upp á bátinn og oft varð lítið rúm til þess að sinna skáldagyðjunni í amstri og andstreymi hversdagsins. Sjálf var hún alla tíð fáorð um lífshlaup sitt og lét farga bæði bréfum sínum og dagbókum.
Jakobína – saga skálds og konu veitir dýrmæta innsýn í líf Jakobínu og varpar nýju ljósi á verk hennar. Það er dóttir skáldsins sem segir frá og fléttar listilega saman endurminningar, vandaða heimildavinnu og ögn af skáldskap – því að Bína mætir sjálf í kaffi og hefur uppi ýmsar meiningar um þessa ævisögu sína.
Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir sagnfræðingur er fædd í Garði í Mývatnssveit 1956. Hún hefur sinnt margvíslegum ritstörfum gegnum tíðina, en síðast kom út eftir hana femíníska sjálfsævisagan Alla mína stelpuspilatíð.
3 umsagnir um Jakobína: saga skálds og konu
gudnord –
„Stórmerkileg bók um stórmerkilega konu.“
Egill Helgason / Kiljan
gudnord –
„Falleg mæðgna – og ævisaga, skrifuð af virðingu og kærleika.“
Brynhildur Björnsdóttir / Fréttablaðið
Arnar –
„ Í miklu návígi við söguefnið er óhætt er að segja að henni hafi tekist vel upp að skrifa flókna sögu – bæði um móður sína en ekki síður samfélag hennar og aldarfar. Í því liggja góðir galdrar bókarinnar.“
Sigurður Bogi Sævarsson / Morgunblaðið